Weight | 1 kg |
---|
Zolo – LÚX, herbergisúði
3.980 kr.
Zolo LÚX herbergisúði/hýbílailmur
Eins og nafnið gefur til kynna þá er um að ræða algjöran lúxus ilm sem á klárlega eftir að verða einn af uppáhalds.. og ekki skemma umbúðirnar og útlitið fyrir, fallegur burgundy litur með gylltu ívafi.
LÚX ilmurinn samanstendur af ferskum hindberjum og léttum nótum af ananas, ferskjum & sætum, safaríkum jarðaberjum, í bland við Saffron og Jasmín, og ekki nóg með það heldur inniheldur hann einnig hvítan moskus (white musk) og indverskan við, sem minnir á ilminn af Indversku skóglendi eftir mikla rigningu, sem er sætur og upplífgandi gróður/jarðar ilmur, hreint út sagt dásamlegur, færð svona á tilfinninguna eins og þegar þú gengur í gegnum gróðurmikið skóglendi sem ilmar af furunálum, Sandalwood, Cedarwood og Vetivera.
LÚX er hinn fullkomni hýbílailmur… eða það finnst okkur! Hann er ekki of þungur, bara svona „akkúrat“ Hann er ferskur, hlýr, mjúkur og sætur á sama tíma, hann segir einfaldlega: “ Velkomin heim!“
Á augabragði breytirðu umhverfinu með einföldum úða –býður fjölskyldu og vini velkomna, vekur skilningarvitin eða skapar róandi og afslappandi umhverfi fyrir sjálfa/n þig.Herbergisúðinn okkar er fullur af fínustu ilmefnum og lyftir upp heimilinu með lokkandi og aðlaðandi ilmi.
Fullkomin leið til að lyfta upp andrúmsloftinu á ilmandi hátt. Þú einfaldlega úðar og allt ilmar.
100 ml
In stock