Þyngd | 1 kg |
---|
BLOOM CRIMSON
14.900 kr.
The Bloom –ultrasonic ilmúði The Bloom ilmúðinn er fullkomin leið til fylla heimilið ilmi, litum og ljósi.Nýtísku, ultrasonic tækni er notuð til að dreifa kranavatni og ilmi eða ilmolíu um andrúmsloftið með léttum úða sem á töfrandi hátt róar huga, líkama og sál. The Bloom ilmúðinn er byltingarkenndur, laus við hita, loga og reyk og dásamleg leið til að dreifa uppáhalds ilminum þínum um andrúmsloftið.
The Bloom býður upp á örvandi ljós sem breytist úr skærum geisla í milda og ljúfa lýsingu og líkist þannig náttúrlegum ljósaskiptum, frá dögun til rökkurs.Þessi ilmúði gerir þér einnig kleift að stöðva lýsinguna þar sem þú vilt hafa hana, og að auki geturðu valið að sleppa lýsingunni en þannig má nota Bloom að nóttu til líka. Fleiri valmöguleikar fela í sér að velja má úðann með hléum, tilvalið fyrir sterkari ilm og olíur. Að auki má velja að slökkva á úðanum og nota eingöngu lýsinguna til að lýsa upp herbergið. Með fyrsta flokks tækni, hafa tæknimenn okkar getað aukið mögulegt vatnsmagn í Bloom ilmúðanum (200 ml) sem þýðir að þú getur notað hann í 8 – 9 klukkutíma án þess að þurfa að fylla af vatni (og olíu).
Lampann má fá í frábæru litaúrvali.
Stærð:
Hæð 23,7 cm x 15,2 cm
á lager